19.06.2006
Í dag var vinnustofu minni pakkað í kassa og
flutt frá Skjaldarvík til geymslu á efri
hæð Listasafns Akureyrar............ Enn einn staðurinn
til að setja upp vinnustofu um stutta stund..............
Allt í óvissu með framhaldið
06.06.2006
Frestur til að flytja vinnustofuna af Skjaldarvík hefur
verið framlengdur eitthvað fram eftir júní
vegna fótbrots The Artist og tafa á framkvæmdum,
þetta kemur sér afar vel í því
óvissuástandi sem er í vinnustofumálum
þessa dagana...
30.05.2006
Eftir 20 mánaða dvöl með
vinnustofu á Skjaldarvík er enn komið að
því að flytja, Akureyrarbær
þarf á húsnæðinu að halda til
að koma þar upp sérskóla.
Vilji
er hjá fasteignum Akureyrar og Menningarfulltrúa
að
finna annað húsnæði og er horft til pláss
sem er innan við Jónas Viðar Gallery í Listagilinu
og standa yfir viðræður við Hannes á
LIstasafninu um það.